Bull & blaður

Tuð & tuldur ehf

21.1.2010

dagur 1088

Bóndadagurinn ægilegi er á morgun en eins og flestum er kunnugt um þykir ofur eðlilegt að slafra í sig skemmdum mat af timburtrogum, jafnt í gríð sem erg, frá og með þeim degi. Sjálfur er ég lítt spenntur fyrir þessum undarlega íslenska sið en ekki mun öllum vera kunnugt um að hin eiginlegu þorrablót, eins og við þekkjum þau í dag, eru í sjálfu sér alls ekkert svo gamall siður. Það var í rauninni ekki fyrr en á sjötta áratug síðustu aldar sem þáverandi eiganda Naustsins datt í hug að reyna að byggja upp eins konar hefð til að auka á aðsókn veitingastaðarins yfir daufasta tíma ársins. Í svartasta skammdeginu þótti tilvalið að rifja upp hvernig Íslendingar þurftu að nærast öldum saman á nánast óætri fæðu og nota um leið tækifærið til að græða svolítið á nýjungagjörnum mörbúanum sem ávallt hefur fagnað öllum ástæðum til að lyfta sér svolítið upp.

Súrir hrútspungar, brennd kindaandlit, reykt hvalspik, kæstir hrafnshreifar, útmiginn hákarl, nætursaltað hrútaberjalyng og marflóarétnir hrossabarkar er aðeins brot af því sem snobbaðir Íslendingar leggja sér til munns á slíkum mannfögnuðum en til að lifa herlegheitin af er líka bráðnauðsynlegt að hella oní sig alíslensku brennivíni til að slá á versta bragðið. Áfengið þykir þannig einnig mikilvægt fyrir óminnisþörf morgundagsins af því að hafa lagt sér slíka fæðu til munns.

Eftir um 50 ára þróunar- og markaðsvinnu er svo loksins komið að því að alheimsvæða ósköpin og græðgisfullir útflytjendur, enn uppfullir af íslenska drauminum, keppast nú við að senda út sýrð hrútaeistu í tonnavís. Ég hélt reyndar að við gætum ekki lagst mikið lægra í lúðaskapnum en svona tilraunir eru ekki beint til þess fallnar að bæta mölbrotna ímynd okkar, gagnvart öðrum jarðarbúum, sem er víst ekki mjög beysin fyrir.

Úr því að þorramatur er svona ægilega sniðugur, af hverju hefur þá engum dottið í huga að kolsýra mysu? MYSA SODA! Ég er viss um að Íslendingar eru nógu vitlausir til að láta það slá í gegn hjá sér.

Þrúgur reiðinnar, blaðsíða 5730...

Skrifað 21.1.2010 kl. 21:42 af Garðar Jónsson

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 58
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 133
Gestir í gær: 32
Samtals flettingar: 431347
Samtals gestir: 103735
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 08:39:05

Vafraðu um

Hvert er versta lag Íslandssögunnar?

 Ást á pöbbnum - Leoncie

 Einn dans við mig - Hemmi Gunn

 Ég held ég gangi heim - Valg. Guðjóns

 Ég vil ganga minn veg - Einar áttavillti

 Fráskilin að vestan - Anna Vilhjálms

 Hundurinn Húgó - Hallbjörn Hjartar

 Í kartöflugarðinum heima - Á. Johnsen

 Ríðum sem fjandinn - Helgi Björns

 Sjúddirarrirei - Gylfi Ægisson


Sýna niðurstöður

Hetjan...

Nafn:

Garðar Jónsson

Heimilisfang:

Reykjavík

Tenglar

Flettingar í dag: 58
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 133
Gestir í gær: 32
Samtals flettingar: 431347
Samtals gestir: 103735
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 08:39:05

Eldra efni