Bull & blaður

Tuð & tuldur ehf

30.10.2009

dagur 1061

Föstudagskvöld og ég er að velta fyrir mér að sleppa djamminu að þessu sinni og leyfa jafnvel áfenginu einnig að hvíla sig frá mér þessa helgina. Býst við að eyða kveldinu með bók úr ritsafninu Með reistan makka og bolla af kokteilsberjalyngstei og einnig þætti mér vænt um ef hjartahlý manneskja gæfi sig fram til að nudda á mér tábergið. Ef einhver hefur eitthvað út á þessi áform að setja og hefur aðra tillögu varðandi kvöldið er hann/hún vinsamlegast beðin/n um að luma á þeim hugmyndum sínum áfram.


Tottenham - Arsenal í hádeginu á morgun og því miður held ég að við séum að fara að tapa þessum leik. Fyrst við gátum ekki drullast til að vinna miðlungslið Stoke á heimavelli um síðustu helgi get ég ekki séð hvernig við eigum að fara að vinna miðlungslið Arsenal um þessa helgi í staðinn. Vona bara að önnur úrslit verði að einhverju leyti hagstæðari þannig að við förum ekki að hrapa langt niður töfluna en í versta falli gætum við verið komnir niður í 8. sæti Úrvalsdeildarinnar eftir leiki helgarinnar. ÁFRAM TOTTENHAM!

Er annars í einhverju geysilegu bullstuði í kvöld og því vel við hæfi að birta ljósmynd af þessu ægifagra lúðmenni hér fyrir neðan.

Hér er sem sagt Garðarinn eins og hann gerist bestur á fögrum vetrardegi og algjörlega með öllu útilokað að ímynda sér að kappinn sé lagður af stað inn í fimmtugsaldurinn. Reyndar minnir þessi mynd eilítið á góðan félaga minn, skegglausan að austan og lesendur hér geta dundað sér við að velta því fyrir sér hver sá myndarmaður gæti verið. Ég er reyndar með eindæmum ómannglöggur eins og alþjóð er kunnugt og því ekki víst að fólk sé sammála mér um hverjum myndin líkist. Því segi ég ekki um hvern sé að ræða nema rétt ágiskun rati í hús.

Er annars kominn á blaðsíðu 166 í Þrúgum reiðinnar.

Og hér kemur svo mynd dagsins...

Skrifað 30.10.2009 kl. 21:47 af Garðar Jónsson

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

26.10.2009

dagur 1060

JIBBÝ!!!

HRAKFARIR & HEIMSKUPÖR eiga 4 ára afmæli í dag og allir að tjá sig eitthvað í tilefni dagsins...

Og ekki nóg með það heldur var fyrsti vetrardagur nú um helgina og því vel við hæfi að óska landsmönnum öllum gleðilegs veturs.

Mánudagsmynd...

Skrifað 26.10.2009 kl. 7:08 af Garðar Jónsson

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.10.2009

dagur 1059

Komin helgi og notalegheit því framundan næstu tvo dagana. Mínir menn í enska boltanum eiga leik gegn Stoke á morgun og ef allt hið besta gengur eftir, og óskaúrslit helgarinnar líta dagsins ljós, má alveg eins búast við að Tottenham tróni á toppi Úrvalsdeildarinnar þegar næsta vika gengur í garð. Reyndar er það oftast þannig að þegar væntingarnar eru sem mestar þá ganga hlutirnir sjaldnast upp. Í það minnsta gerir maður kröfur um að Tottenham vinni Stoke en hæpið verður að teljast að Blackburn fari að vinna Chelsea á útivelli eða sundboltafélagið Swimming pool að vinna Man U. Sjáum til. ÁFRAM TOTTENHAM!

Svínaflensan alræmda virðist vera að ná hámarki sínu hér á landi og nú þegar bólusetningarlyfin eru loksins byrjuð að berast til landsins, keppast heilbrigðisyfirvöld við að sprauta vökvanum í allra mikilvægustu pósta samfélagsins áður en sauðsvartur almúginn fær að berjast um síðustu skammtana. Reyndar finnst mörgum undarleg sú forgangsröðun sem yfirvöld hafa opinberað um hverjir fái fyrstu sprauturnar en í bráðnauðsynlegum hópi starfsfólks í heilbrigðisgeiranum, lögreglu, slökkviliðs og björgunarsveitarfólks má einnig finna alþingismenn!

Þegar bólusetningu þess hóps er lokið er komið að sjúklingum með "undirliggjandi sjúkdóma" og barnshafandi konum en eftir það er öðrum heimilt að mæta. Hvað í andsk... eru alþingismenn að gera í þessum fyrsta forgangshóp? Þeir ganga fyrir ófrískum konum, fötluðum, öldruðum og sjúklingum! Reyndar má sjálfsagt færa rök fyrir að alþingismenn teljist flestir hverjir með undirliggjandi sjúkdóma en þeir eiga ekki að ganga fyrir. Úff, hvað margt er rotið hérna...

Annars er ég kominn á blaðsíðu 69 í Þrúgum reiðinnar en er að spá í að taka Harry Potter maraþon á dvd um helgina. Býst því við að John Steinbeck fái að mestu frí þessa helgi.

Og föstudagsmyndin...

Skrifað 23.10.2009 kl. 20:41 af Garðar Jónsson

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

19.10.2009

dagur 1058

Hef verið nokkuð duglegur við bókalestur síðustu vikurnar eftir að hausta tók og býst við stór hluti frítíma míns í skammdeginu næstu mánuðina eigi einnig eftir að nýtast til slíkrar iðju. Í sjálfu sér ekkert út á það að setja enda hef ég ávallt lesið mikið mér til ánægju og yndisauka og engin ástæða til að fara að draga neitt úr þeim ósið á efri árum. Nú var ég að klára tæplega 600 blaðsíðna doðrant, Sakleysingjana eftir Ólaf Jóhann Ólafsson, og fannst hún nokkuð góð. Átti svo sem ekki von á öðru þrátt fyrir að hafa aðeins lesið eina bók eftir höfundinn áður en það var líklega fyrir um 17-18 árum síðan. Reyndar skal ég viðurkenna að ég man ekki hvort það var Markaðstorg Guðanna eða Fyrirgefning syndanna en ég man þó það að mér fannst hún ágæt!

Minntist á það einhvern tímann um daginn að Þriðja tákn Yrsu Sigurðardóttur biði mín þá til lestrar og hún fær ágætis einkunn en reyndar finnst mér bækur hennar einkennast töluvert af því að vera skrifaðar af konu. Ég er ekki að segja að femínisminn skíni í gegn en persónulega finnst mér bara lítið varið í að þurfa að skrönglast í gegnum langar lýsingar á því hvernig drögtum kvenpersónur bóka hennar klæðast, hvaða tegundir ilmvatna þeirra eru eða hvort aðalpersónan notar græna eða rauða papriku í mataruppskriftina. Þetta fer pínulítið í taugarnar á mér. Samt gaman að sjá hvernig æskustöðvar mínar tengjast söguþræði bókarinnar og hvar sjálft þriðja táknið er að finna. Lesið og þér munuð sjá.

Þá las ég Hótel Kaliforníu eftir Stefán Mána en hún er ekki að heilla mig frekar en aðrar bækur þess höfundar. Hins vegar hafði ég nokkuð gaman að Malaranum sem spangólaði eftir finnska höfundinn Arto Paasilinna en sá hinn sami skrifaði einmitt bókina Dýrðlegt fjöldasjálfsmorð sem ég fjallaði um hér. Malarinn sem spangólaði minnir mig að einhverju leiti á Gróður jarðar eftir Knut Hamsun og má þá um leið einnig líkja henni við Sjálfstætt fólk ef einhver vill fara út í samanburð á sérvitringum en eflaust er einhver sem er mér ekki sammála. Nefni engin nöfn...

Í gegnum tíðina hef ég sankað að mér bókum af hinum ýmsu stöðum og iðulega hef ég yfir að ráða um 10-20 bóka stafla sem ég get valið úr það sem mig langar til að lesa hverju sinni. Góði hirðirinn er mín uppáhalds bókabúð og þar er úrvalið einnig fjölbreytilegast og um leið ódýrast en Kolaportið og ýmsir bókamarkaðir hafa einnig reynst ágætlega fram að þessu í leit að góða lesefni. Veturinn er alla vega efnilegur því að í ólesna staflanum mínum bíða meðal annars Þrúgur reiðinnar eftir John Steinbeck, ævisaga Vincent van Gogh eftir Irving Stone, bækurnar Stalíngrad og Fall Berlínar eftir Antony Beevor og Óvinir ríkisins eftir Guðna Th. Jóhannesson svo eitthvað sé nefnt. Og eflaust á ég eftir að grípa með mér fleiri bækur á hundrað kall í þeim Góða á næstu mánuðum. 

Eflaust hljóta einhverjir að líta á bókalestur sem tímaeyðslu og sjálfsagt kunna hinir sömu að spyrja sjálfa sig hvort manngarmurinn eigi sér ekkert líf en ég hef nægan tíma fyrir sjálfan mig og á meðan eru ekki aðrir á heimilinu að býsnast yfir ógerðum hlutum. Þannig er bara frelsið við það að búa einn og hentar mér alveg ágætlega. Ég er piparveinn og er stoltur af því. Það truflar mig lítið þó að ekki sé skipt á rúminu hjá mér nema á hálfs árs fresti, hvort peran í ljósinu yfir eldhúsborðinu sé búin að vera sprungin síðan ég flutti inn eða hvort gosdósirnar í glugganum séu fjarlægðar þegar ekki komast fleiri fyrir.

Ég eyði frítíma mínum að stórum hluta í lestur á meðan aðrir liggja yfir sjónvarpinu eða Internetinu. Það truflar mig ekki neitt þótt Skjárinn sé að breytast í áskriftarstöð og reyndar spái ég því að stöðin verði ekki langlíf þannig. Og yrði það sjálfsagt ekki heldur á hinn veginn. Ég er nánast alveg hættur að villast inn á Feisbúkkið en mér virðist sem sumir eigi þar sér sitt annað (og kannski eina) líf, jafnt í vinnunni sem annars staðar. Minn frítími snýst alla vega að miklu leiti um bækur og hefur alltaf gert.

Og úr því að minnst er á Góða hirðirinn í þessu nöldri öllu er algjörlega réttlætanlegt að birta þessa mynd hér í tilefni dagsins...

Skrifað 19.10.2009 kl. 21:53 af Garðar Jónsson

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

17.10.2009

dagur 1057

Kannski ég skili bara inn eins og einu bloggi í dag úr því að ég er heima hjá mér...

Skrifað 17.10.2009 kl. 10:31 af Garðar Jónsson

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

11.10.2009

dagur 1056

Þá hef ég lokið við að ganga frá koti mínu í Letigarðinum fyrir veturinn en lokahnykkurinn var rekinn á þann verknað nú í dag. Búið er að loka fyrir alla glugga og húsið því fullbúið undir það að taka á móti vetrinum sem lúrir rétt handan við hornið. Helgi, Kris & Ormarnir mættu einnig til árlegs frágangs á svæðinu fyrir veturinn og gömlu hjónin létu sig ekki heldur vanta, enda almennt nokkuð notaleg haustveðurblíða þann tíma sem staldrað var við.

Reyndar fór ekkert sérstaklega mikið fyrir hlýindunum, enda kannski ekki við því að búast um miðjan októbermánuð, en hreyfing, húfur og gallar komu í veg fyrir kuldahroll og annan óskapnað við útiveruna.

Hér má sjá hana Kristbjörgu frá Skógum gera heiðarlega tilraun við að reyna að festa börnin sín á bekkjarmynd en ég notaði hins vegar tækifærið og myndaði myndasmiðinn reyna að myndast við að mynda myndefni sitt.

Á ekki von á að fara fleiri vinnuferðir austur fyrir veturinn og get því farið að leggjast undir minn árlega feld, sem undanfarin árin hefur markast frá ca. miðjum október og fram í apríl. Jólin trufla það ferli reyndar eilítið rétt fyrir áramótin en í það minnsta hef ég janúar, febrúar og mars til að hvíla lúin bein og safna kröftum fyrir næstu törn.

En hér er mynd dagsins...

Skrifað 11.10.2009 kl. 20:30 af Garðar Jónsson

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

1.10.2009

dagur 1055

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 57
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 251
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 431213
Samtals gestir: 103703
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 10:48:47

Vafraðu um

Hvert er versta lag Íslandssögunnar?

 Ást á pöbbnum - Leoncie

 Einn dans við mig - Hemmi Gunn

 Ég held ég gangi heim - Valg. Guðjóns

 Ég vil ganga minn veg - Einar áttavillti

 Fráskilin að vestan - Anna Vilhjálms

 Hundurinn Húgó - Hallbjörn Hjartar

 Í kartöflugarðinum heima - Á. Johnsen

 Ríðum sem fjandinn - Helgi Björns

 Sjúddirarrirei - Gylfi Ægisson


Sýna niðurstöður

Hetjan...

Nafn:

Garðar Jónsson

Heimilisfang:

Reykjavík

Tenglar

Flettingar í dag: 57
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 251
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 431213
Samtals gestir: 103703
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 10:48:47

Eldra efni