Bull & blaður

Tuð & tuldur ehf

31.7.2009

dagur 1046

Komið að hinni árlegu alíslensku verslunarmannahelgi og því ekki úr vegi að birta nokkrar sumarmyndir úr Letigarðinum í tilefni þess.

Fyrst er í boði mynd frá birkiplöntuniðursetningatörn sem framkvæmd var undir lok júní í blíðskaparveðri og taumlausum gestagangi. Þá gróðursettum við bræðurnir á annað hundrað birkitré í um 20 stiga (af hverju ekki tröppur?) hita með dyggri aðstoð þeirra Elvars hennar Örnu og Jóns Kalda.

Kaldinn var annars bara nokkuð hress með árangurinn.

Einhverju helgum seinna fór Helgi í kábójleik með nautakjömmum af stærri gerðinni og sést hér munda vopnin að hætti Clint Eastwood eða Lukku Láka.

Um miðjan júlí fengum við útlenska útgáfu af gróðraskúr og á þessari mynd má sjá aðdragandann að þeim ósköpum. Þarna er glampandi sólskin og um 20 stiga hiti á Letigarðsslóðum en kolsvartur skýjabakki nálgast óðfluga í bakgrunninum með nokkuð stöðugum þrumudrunum í fjarska.

Við sáum hvert stefndi og ég dreif í að koma verkfærunum í skjól og plasta fyrir þá glugga sem opnir voru á húsinu. Og um tuttugu mínútum seinna var ástandið svona.

Sennilega mesta rigning sem ég hef upplifað um ævina á Íslandi og gjörsamlega allt fór á flot. Heilmikið af þrumum og eldingum fylgdi með en heyrðist samt lítið í þeim vegna þess hve rigningin skall svakalega á þakinu á bústaðnum hans Helga.

Visir.is kann sko að vekja athygli á slúðurfréttunum sínum með ansi krassandi fyrirsögnum. Og ekki er verra að myndir fylgja fréttinni...

En hér er mynd þessa föstudags...

Skrifað 31.7.2009 kl. 16:24 af Garðar Jónsson

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.7.2009

dagur 1045

Skúbb dagsins. Hrafnhildur sys og Guðmundur giftu sig um daginn og ég er auðvitað fyrstur með frjettirnar. Miðað við myndina hér fyrir neðan mætti ætla að athöfnin hafi farið fram í Vegas en þrátt fyrir ómælda útrásaþörf íslensku bankanna minnist ég þess ekki að hafa heyrt um að Landsbankinn hafi opnað útibú þar í þorpi.

Óska dúllukrúsubollunum innilega til hamingju með áfengann...

Annars alltaf jafn nóg að gera og til að mynda aðstoðaði ég Axel við að klambra saman smá pall hjá þeim Sigurbjörgu. Ælega fínt bara.

Sá E.T. í fyrsta skipti um daginn og fannst hún bæði langdregin og leiðinleg. Titanic var betri.

En hér kemur brandari dagsins...

Skrifað 24.7.2009 kl. 18:31 af Garðar Jónsson

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

12.7.2009

dagur 1044

Nýjasta nýtt bara. Lífið gengur sinn vanagang og maður gerir nú lítið annað en að vinna og vera í Letigarðinum. Enda fínt bara og ekki skemmir veðrið fyrir eins og það hefur verið í sumar en hitastigið hefur farið uppfyrir 15 stigin nánast upp á hvern einasta dag, síðasta einn og hálfan mánuðinn. Best að henda fram nokkrum Letigarðsmyndum (teknar á símann) frá undanförnum vikum...

Fyrstur á mælendaskrá er Jón Ingi með Homeblest kexköku í hendinni að eltast við spóaræfil en sá var ekkert sérstaklega spenntur fyrir kexinu.

Hérna er svo Helgi bróðir við gítarglamur í kvöldsólinni (þessi mynd er reyndar undarlega yfirlýst)...

Og hér má svo sjá á hvaða byggingastigi kofinn okkar er í þessum töluðum orðum.

Nú fer því hver að verða síðastur til að sjá gömlu grænu skúrana sem staðið hafa á þessum stað undanfarin ár en er nú að breytast í undurfagran sva... sumarbústað. Næsta mál á dagskrá er svo að fá eins og 30 ára trjávöxt á einni viku og ég yrði ansi hamingjusamur.

Aldrei að vita nema ég bloggi kannski einhvern tímann aftur en það virðist enginn vera að lesa þetta...

Skrifað 12.7.2009 kl. 10:47 af Garðar Jónsson

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

8.7.2009

dagur 1043

Var að spá í að blogga svolítið í dag...

En svo nenni ég því ekki...

Skrifað 8.7.2009 kl. 21:36 af Garðar Jónsson

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 342
Gestir í dag: 36
Flettingar í gær: 210
Gestir í gær: 27
Samtals flettingar: 431841
Samtals gestir: 103788
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 20:53:53

Vafraðu um

Hvert er versta lag Íslandssögunnar?

 Ást á pöbbnum - Leoncie

 Einn dans við mig - Hemmi Gunn

 Ég held ég gangi heim - Valg. Guðjóns

 Ég vil ganga minn veg - Einar áttavillti

 Fráskilin að vestan - Anna Vilhjálms

 Hundurinn Húgó - Hallbjörn Hjartar

 Í kartöflugarðinum heima - Á. Johnsen

 Ríðum sem fjandinn - Helgi Björns

 Sjúddirarrirei - Gylfi Ægisson


Sýna niðurstöður

Hetjan...

Nafn:

Garðar Jónsson

Heimilisfang:

Reykjavík

Tenglar

Flettingar í dag: 342
Gestir í dag: 36
Flettingar í gær: 210
Gestir í gær: 27
Samtals flettingar: 431841
Samtals gestir: 103788
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 20:53:53

Eldra efni