Bull & blaðurTuð & tuldur ehf 29.5.2009dagur 1038Frænka mín hún Anna Bíbí á afmæli í dag föstudaginn 29. maí 2009 og er orðin fimm ára gömul. Hún er reyndar stödd erlendis á afmælisdaginn sinn en ég hef séð um að fóðra fósturdóttur hennar, hana Snuðru, undanfarna dagana og skipti meira að segja um sand hjá henni í gær kjellingunni. ÁFRAM SNUÐRA! En í dag er föstudagur og ég neyðist eiginlega til að henda inn einhverjum orðum hér á skjáinn, úr því að ég er byrjaður, þrátt fyrir afskaplega takmarkaða nennu þess efnis í augnablekinu. Hvítasunnuhelgin framundan og Letigarðurinn einnig en það er aldrei að vita nema ég hendi inn einhverjum nýjum myndum frá óðalsjörðinni annað hvort á næsta eða þarnæsta ári. Er búinn að vera að lesa tæplega 800 blaðsíðna Sagnfræðinginn eftir Elizabeth Kostova og hún er bara alveg ágæt. Mæli alveg með henni. Annars hef ég aðeins legið yfir Stephen King í vetur en las þar að auki ævisögu Eric Clapton, Öskju Yrsu Sigurðardóttur, Engla & djöfla Dans Brown auk ævisögu Tolkiens svo eitthvað sé nefnt. Næst á dagskránni er Belladonna skjalið sem ég ræðst á með takmörkuðum væntingum og svo bíða mín hellingur af lestrarefni í bókahillunni. Versla flestar mínar bækur í hinni frábæru bókabúð Góða Hirðinum og borga sjaldan meira en hundrað kall fyrir stykkið. Mæli með að fólk kíki þar inn ef því vantar eitthvað til að lesa í sumarfríinu. Annars er það bara mynd dagsins... 25.5.2009dagur 1037Þá er lokið hinum heimskunna getraunaleik HRAKFARA & HEIMSKUPARADEILDINNI en sem kunnugt er lauk ensku Úrvalsdeildinni í knattspyrnu nú um helgina. Sigurvegari vetrarins er hvorki meira né minna en Sigga Sig en hún varð efst og fékk 390,01 stig eftir veturinn. Hannes Árna varð í öðru sæti með 368,19 stig, Helgi bróðir varð þriðji með 367,19 og Keli varð fjórði með 354,33 stig en þess má geta að sigurvegari síðustu tveggja vetra, Hafdís Sig, fékk ekki eitt einasta stig fyrir leiki vetrarins. (Ansi var það nú lélegt hjá henni, hehe...) Annars varð Bryndís efst í síðustu umferðinni og fékk 19,7 stig, Hannes fékk 15,1 og sjálfur fékk ég 13,02 stig. Í heildarkeppninni lenti Sigga því í 20. sætinu af 4556 keppendum, sem er bara nokkuð gott, Hannes varð í 72. sæti, Helgi í því 77. og Keli endaði í því 125. Aðrir keppendur HRAKFARA & HEIMSKUPARADEILDARINNAR lentu neðar en Steini Darri varð neðstur okkar fólks á listanum og lenti 2643. sæti heildarkeppninnar. Óska Siggu að sjálfsögðu til hamingju með þennan sigur og um leið vek ég athygli á slakri frammistöðu karlkyns tippara þessa leiks en í þau þrjú skipti sem þessi getraunaleikur hefur farið fram hafa eingöngu kvenfólk haft sigur úr bítum. Það er að sjálfsögðu til skammar því að eins og alþjóð veit hefur kvenfólk ekkert vit á fótbolta. Sigga fær að sjálfsögðu mynd (enn einn feisbúkk-stuldurinn) af sér sem sigurvegari vetrarins. Og úr því maður er farinn að setja eitthvað á öldur Internetsins er ekki úr vegi að henda inn eins og einni almennri bloggfærslu svona í tilefni dagsins. 21.5.2009dagur 1036Þá er komið að afmælisbarni '69 árgangsins í Grunnskólanum á Hellu en í dag fimmtudaginn 21. maí 2009 er það hvorki meira né minna en hún Haddý sem hefur náð þeim merka áfanga í lífi sínu að verða fertug í fyrsta skipti. Og til að viðhalda siðum og venjum afmælisdagapistla Hrakfara & Heimskuparasíðunnar undanfarinna mánaða er að sjálfsögðu boðið upp á stolna Feisbúkk fjölskyldumynd af dömunni en ég er viss um að hún fyrirgefur mér þá yfirsjón. Og svo verð ég eiginlega líka að geta þess að Garon bróðir hennar á einnig afmæli í dag (reyndar töluvert minna) og einnig líka dóttir/sonur hennar ef ég man rétt? 15.5.2009dagur 1035Kominn tími á smá bloggfærslu enda föstudagur í dag og helgin framundan með öllum sínum vonum og þrám. Það verður væntanlega lítið um enska boltann og Eurovision á mínu heimili þessa helgina en þeim mun meiri Letigarðsvinna með tilheyrandi notalegheitum í bland við puð og púl. Vænti þess að lognið sem verið hefur á vestanverðu landinu undanfarin dægrin sé hætt að fjúka, vindurinn hafi nú klárast og framundan sé bara sól og sæla það sem eftir er sumars. Annars er ég nú þegar búinn að eyða nokkrum helgardögum á Letigarðsslóðum þetta vorið þó enn hafi ég ekki lagt í það að gista þar. Til þess hefur verið fullkalt fram að þessu en ætli ég breyti því ekki núna, enda heldur farið á hlýna meira á nóttunni og nýting á tíma og bensíni ætti því að verða betri héðan í frá. Framundan er töluverð vinna og stefnan hefur verið sett á að klára kofann algjörlega að utan fyrir haustið auk þess sem ganga þarf frá frárennslislögnum, gróðursetja nokkur hundruð trjáplöntur, leggja lagnir frá vatnsbólinu og fleira og fleira tilfallandi. Í augnablikinu er ég að klára að hlaða grjóthleðsluna fyrir framan húsið að vestanverðu en auk þess erum við feðgarnir þrír búnir að gróðursetja rúmlega 200 birkiplöntur út um allar tryssur. Við erum því ekki búnir að vera alveg aðgerðalausir í vor en enn bíða okkar þó líklega um 600 aspir og svo má gera ráð fyrir að við hendum niður um 4-500 birkitrjám í viðbót. Úff! Greinilega nóg að gera í sumar og ágætt að hvorki stórmót í fótbolta né utanlandsferð komi til með að ógna þeirri ánægju. Og svo má ekki gleyma að minna eins og einu sinni á HRAKFARA & HEIMSKUPARADEILDINA okkar... 4.5.2009dagur 1034Haldiði að hann Gaui Jóa sé ekki orðinn fertugur í dag, mánudaginn 4. maí árið 2009. Hann er einn af "best of" af '69 árgangnum í Grunnskólanum á Hellu sem var og hét en þess utan er hann náttúrulega einn af æskuvinunum sem maður sparkaði stundum í á malarvellinum sáluga (og reyndar víðar), spilaði með í alla vega tveimur (lélegum) hljómsveitum og sinnti auk þess trúnaðarstörfum í einhverjum af leynifélögunum alræmdu sem við starfræktum fyrir rúmlega 30 árum. Já og svo eyddum við að minnsta kosti tveimur löngum rigningarsumrum (öðru þeirra í hjólhýsi) á Nesjavöllum sem skófluvinir hjá jarðvegsverktakasamsteypunni Vinnuvélum Jóa Bjarna á Hellu. Þá lékum við okkur stundum með Matchbox bílana hans (þeir voru í sérstakri Matchbox tösku), drukkum í okkur Sval & Val og Solvpil en hins vegar á ég enn eftir að fara á skauta með Gaua. Hann átti aldrei skauta eins og við hin flest en á móti átti hann ansi athyglisverða snjóþotu sem hægt var að stýra með sérstökum handföngum og hann var svolítið öfundsverður af henni. Þá átti hann auðvitað líka stífbónaðan og silfraðan Grifter sem var eiginlega af næstu kynslóð á undan BMX. Gaui er til í formi teiknimyndahetju (þar lítur hann út eins og hann sé alltaf með svartan skíðahjálm á hausnum) en hann var einn af okkur fimmmenningunum (auk okkar tveggja; þeir Helgi, Elís og Lalli) sem var krotaður á blað á þessum tímum sköpunarþarfar og óendanlega frjós hugmyndaflugs. Þessar hetjur börðust við bófa og ræningja af öllum stærðum og gerðum en alræmdastur þeirra allra var hinn illvígi Axmister sem líklega hefur átt fyrirmynd sína í sjálfum Rassópúlos úr Tinnabókunum. Enn er til fullt af sýnishornum af þessum myndasögum en ólíklegt verður að teljast að þau ósköp verði nokkurn tímann birt hér eða komi fyrir augu almennings á einn eða annan hátt. Í gamla daga var það viðtekin venja að eyða bróðurparti afmælisdags kappans við að slökkva sinuelda í móanum heima, áður en haldið var í köku- eða pulsupartý í Útskálunum, reykfylltir og svitastorknir á sál og líkama og angandi af sóti, en mér sýnist móinn ekki vera til viðræðanna um það í dag enda allt fremur rakt yfir á að líta. Flettingar í dag: 128 Gestir í dag: 30 Flettingar í gær: 251 Gestir í gær: 37 Samtals flettingar: 431284 Samtals gestir: 103723 Tölur uppfærðar: 19.3.2010 23:31:58 |
Vafraðu umTenglar
Flettingar í dag: 128 Gestir í dag: 30 Flettingar í gær: 251 Gestir í gær: 37 Samtals flettingar: 431284 Samtals gestir: 103723 Tölur uppfærðar: 19.3.2010 23:31:58 |
Eldra efni